Auður Hafsteinsdóttir  lauk einleikaraprófi á fiðlu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983 aðeins 17 ára gömul. Hún lauk B.M. gráðu með hæstu einkunn frá New England Conservatory í Boston árið 1987 og Master of Music gráðu hjá hinum virtu Almitu og Roland Vamos árið 1991.

Auður var meðlimur í NEC Honors Quartet og NEC Modern Music Ensemble. Hún var jafnframt konsertmeistari Minnesota Opera 1989-1990.

Auður hefur komið víða fram sem einleikari og í kammermúsík á alþjóðlegum vettvangi, m.a. í Bandaríkjunum, Kanada, Japan, Kína og víða í Evrópu. Hún hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum hérlendis og erlendis. Auður er einn af stofnendum píanótríósins Trio Nordica og er einnig meðlimur í Caput nútímatónlistarhópnum. Hún var listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar árin 2011 og 2012. Auður kom fyrst fram hjá Kammermúsíkklúbbnum í janúar 1983 og nú (sept. 2020) leikur hún í 21. skipti fyrir félaga Klúbbsins og gesti.  

Auður hefur leikið inn á fjölda geisladiska fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki m.a. Tutl, Japis, King records, GM records (USA) og Naxos. Hún hefur fengið frábæra dóma fyrir leik sinn. Auður vinnur nú að geisladisk með íslenskri fiðlutónlist frá árunum 1940-2010.

Auður hefur að undanförnu helgað sig kennslu enn frekar. Hún kennir nú í  Menntaskóla í tónlist (áður Tónlistarskólanum í Reykjavík), Listaháskóla Íslands, Tónskóla Sigursveins, Tónlistarskóla Grafarvogs og Tónlistarskóla Kópavogs. Nemendur hennar hafa í gegnum árin unnið keppnir, verið í fremstu röð og komist að í þekktum erlendum háskólum.

Auður hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn. Árið 1985 fékk hún C.D. Jackson verðlaunin sem framúrskarandi strengjaleikari á hinni alþjóðlegu tónlistarhátíð í Tanglewood og 1988 fyrstu verðlaun í The Schubert Competition. Árið 1991 var Auður valin borgarlistamaður Reykjavíkurborgar til þriggja ára og árið 1996 voru henni úthlutuð listamannalaun til þriggja ára frá menntamálaráðuneytinu. Hún var valin bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2005.

                                                                            (menton.is)