Roope, Ari Þór, Sigurgeir

Ari Þór Vilhjálmsson og Sigurgeir Agnarsson eru í hópi fremstu hljóðfæraleikara þjóðarinnar og hafa oft komið fram á vegum Kammermúsíkklúbbsins. Roope Gröndahl hefur á síðustu árum haslað sér völl sem píanóleikari á alþjóðamælikvarða. Hann hefur unnið til verðlauna í Eurovision Young Musicians keppninni og var í úrslitum Queen Elisabeth píanókeppninnar í Brussel árið 2013. Hann leikur árlega á Kuhmo kammertónlistarhátíðinni og hefur leikið einleik með öllum helstu hljómsveitum Finnlands.