Bryndís Halla Gylfadóttir kom fyrst fram hjá Kammermúsíkklúbbnum í janúar 1983, þá nemandi í Tónlistarskólanum; tónleikarnir í september 2020 eru hennar 41. hjá klúbbnum. Bryndís Halla lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Gunnars Kvaran. Eftir það hélt hún til náms í Boston við New England Conservatory þar sem kennarar hennar voru Lawrence Lesser og Colin Carr. Hún lauk þar Mastersnámi árið 1989. Árið 1990 tók Bryndís Halla við leiðandi stöðu sellóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegnir því starfi nú. Bryndís Halla hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, jafnt sem einleikari og í kammertónlist. Hún er félagi í Trio Nordica, Ethos kvartettinum og Caput hópnum. Hún hefur leikið inn á fjölda geisladiska. Auk þess að leika á tónleikum hér á landi spilar Bryndís reglulega á tónleikum bæði í Evrópu og Asíu.